Aníta Sól – Ljósmyndun & Drónamyndataka
Fagleg ljósmyndun og myndbönd fyrir einstaklinga, fyrirtæki og viðburði. Sérhæfi mig í náttúru-, ferðalaga-, bíla- og kynningarmyndum með áherslu á gæði og einstaka upplifun.
Um okkur
Ég heiti Aníta Sól og hef starfað við ljósmyndun og myndbandsgerð í nokkur ár. Ég tek að mér fjölbreytt verkefni fyrir einstaklinga, fyrirtæki og ferðaþjónustu, allt frá portrettmyndum og viðburðum yfir í drónamyndatöku og markaðsefni fyrir samfélagsmiðla og vefsíður. Markmið mitt er að skapa myndir og myndbönd sem vekja athygli, segja sögu og skila faglegri útkomu. Ég legg mikla áherslu á persónulega þjónustu, góða upplifun og vönduð vinnubrögð frá fyrstu hugmynd að afhendingu. Hvort sem þú þarft ljósmyndir fyrir fyrirtækið þitt, viðburð, ferðaverkefni eða samfélagsmiðla, þá finn ég lausn sem hentar þínum þörfum. Allt efni er afhent fullunnið og tilbúið til notkunar.
Þjónusta
- Annað, Sendu á mig tölvupóst og við ræðum það sem þú þarft og verðhugmyndir
- Heill dagur myndir+vídeó, Heill dagur í ljósmyndun og vídeó tökum með fullkláruðu verki í möppu., verð frá 120.000 kr.
- Heill dagur, Heill dagur í ljósmyndun eða vídeó með fullkláruðum myndum í möppu., verð frá 95.000 kr.
- 2 klst myndir + stutt vídeó, 2 klst ljósmyndun og stutt vídeó og full klárað verk í möppu., verð frá 60.000 kr.
- 2 klst, 2 klst ljósmyndun eða stutt vídeó og full kláraðar verk í möppu., verð frá 40.000 kr.
Senda fyrirspurn
Skoða á ARVO
Knúið af ARVO